Augustinus Bader húðvörur
Skip to Content

Augustinus Bader

Prófessor Augustinus Bader hefur hlotið ótal viðurkenningar fyrir framlag sitt til vísinda á sviði húðumhirðu og er alþjóðlega viðurkenndur sérfræðingur á sviði stofnfrumulíffræði og endurnýjunarlækninga. Hann hefur helgað feril sinn rannsóknum á tækni sem styður við sjálfgræðslu húðarinnar, þar á meðal með byltingarkenndu Wound Gel gelinu frá 2008 sem meðhöndlar alvarleg áverka, sérstaklega bruna án þess að þörf sé á skurðaðgerð eða húðígræðslu. Þessar sömu byltingarkenndu aðferðir liggja að baki og veita innblástur að húðvörulínu Augustinus Bader í dag og eru vörurnar knúnar af einkaleyfisvernduðu Trigger Factor Complex og inniheldur hver formúla samruna náttúrulegra amínósýra, hágæða vítamína og peptíða sem hjálpa til við að næra, vernda og styðja við endurnýjun húðarinnar.


Lúxus húðvörumerkið var sett á markað árið 2018 í samstarfi við Charles Rosier og nýtir þessa einkaleyfisvernduðu tæknina í vörurnar til að styðja við endurnýjun húðarinnar. Vörurnar hafa notið mikilla vinsælda, meðal annars hjá fræga fólkinu. Tæknin styður náttúrulega endurnýjun húðarinnar og vinnur með henni. Augustinus Bader vörurnar næra húðina djúpt, bæta áferð og styrkja húðhindrunina (skin barrier) með sýnilegum og langvarandi árangri. 

Formúlurnar eru hreinar, vísindalega þróaðar og henta öllum húðgerðum, jafnvel viðkvæmri húð. 

 

Augustinus Bader

Ekkert fannst

Engar niðurstöður fyrir "nailberry" í flokki "Vörumerki / Augustinus Bader".