Wonderblush Le Fondant Cream kinnalitur
Kremkenndur kinnalitur sem sameinar umhirðu og lit til að gefa húðinni raka og heilbrigðan ljóma. Silkimjúk áferð sem auðvelt er að byggja upp og blanda — kremið hitnar við snertingu við húðina og gefur náttúrulega „second-skin“ áferð.
Berðu beint á úr stiftinu eftir efra hluta kinnbeinanna og blandaðu síðan með fingurgómunum eða bursta.
Til að ná meiri stjórn á ásetningu geturðu hitað stiftið fyrst á handarbakinu og tekið litinn upp með fingrunum eða bursta.
Þrýstu litnum inn í húðina frekar en að draga hann til — og byggðu upp í þunnum lögum fyrir fágaðan og þéttan ljóma.
Fallegt er að nota sama litinn á kinnarnar, varirnar og yfir nefbroddinn til að gefa samræmi og ferskt yfirbragð.
Camélia — Soft mauve
Aube — Coral nude
Ruban — Bright pink
Figue — Rosy plum
Cerise — Cherry red
Magn: 6,2g
Vörumerki: Wonderblush













