RMS Beauty ReDimension Hydra Eyes augnskuggapalletta
Hrein og talkúmlaus augnskuggapalletta með fjórum litsterkum augnskuggum í mismunandi áferðum – möttum, satínkenndum og metal.
Litirnir bjóða upp á endalausa möguleika til að skapa fallega og áberandi augnförðun. Pallettan er fáanleg í fjórum skemmtilegum litasamsetningum, þar sem hver þeirra inniheldur fjóra vandlega valda og tímalausa liti sem Rose-Marie hefur sjálf sett saman í fullkomnu samræmi.
Augnskuggarnir eru með fjölvíða áferð og langvarandi endingu. Silkimjúk áferðin rennur auðveldlega yfir húðina, blandast vel og auðvelt að byggja upp. Formúlan helst falleg án þess að duft falli niður undir augun.
Hvað gerir vöruna einstaka?
Augnskuggarnir eru prófaðir af augnlæknum og byggja á háþróaðri Gel2Powder-tækni sem sameinar létta, mjúka og teygjanlega áferð hlaups með silkimjúkri áferð púðurs. Þannig fá augnlokin fallega og jafna áferð án þess að þyngja viðkvæma húðina.
Formúlan inniheldur einnig nærandi og mýkjandi innihaldsefni á borð við villta Buriti-olíu og lífræna jojobaolíu sem hjálpa til við að næra og mýkja húðina.
Pallettan kemur í umbúðum sem eru framleiddar úr 75% endurunnu efni með spegli . Með fylgir sérhannaður tvíhliða augnskuggapensill, með einstaklega mjúkum gervihárum sem líkja eftir geitahárum á öðrum endanum og svamp oddi á hinum. Fullkominn til að skapa allt frá náttúrulegri dagförðun til djarfrar og listrænnar augnförðunar.
Vörumerki: RMS Beauty
Specifications
| Litur | Wild Velvet, Rebel Glow, Midnight Bloom, Celestial Dream |

