Expert farðahreinsir

https://www.elira.is/web/image/product.template/3546/image_1920?unique=598675d

Glov Expert for dry skin
GLOV Expert fyrir þurra húð er gerður úr ótrúlega mjúkum örtrefjum, þeir eru nánast eins og silki viðkomu. GLOV fyrir þurra húð rennur mjúklega yfir húðina, hreinsar hana af alls kyns óhreinindum. Klúturinn fjarlægir allan farða, jafnvel vatnsheldan farða. Þurr húð þarfnast sérstakrar verndar og þess vegna hefur GLOV Dry Skin ekki „exfoliating“ eiginleika. Klúturinn fjarlægir farða á náttúrulegan og varfærnislegan hátt, dregur úr hættunni á ertingu sem margar snyrtivörur valda.
Leyndarmál „Silky Milky“ örtrefjanna
- GLOV Silky Milky örtrefjarnar eru fíngerðar og silki mjúkar.
- W- laga örtrefjarnar draga í sig umfram raka en láta náttúrulegan raka húðar ósnortinn.
- Þrátt fyrir að trefjarnar séu viðkvæmar er óhætt að setja hanskann í þvottavél.
- Veldur engri ertingu í húð.

Glov Expert fyrir feita húð
GLOV fyrir feita húð hefur örtrefjar sem eru hannaðar sérstaklega til að leysa vanda feitrar húðar. Hefur eiginleika til að drekka í sig húðfitu þökk sé sérstakri lögun örtrefjanna. Hanskinn er djúphreinsandi og skilar húðinni tandur hreinni og mattri.
Prófað af húðlæknum, ekki ofnæmisvaldandi.
- Fjarlægir augnfarða
- Fjarlægir andlitsfarða
- Hreinsar
- Djúphreinsar
- Jafnar sýrustig

3.621 kr 3621.0 ISK 3.621 kr

4.490 kr

Not Available For Sale

  • Magn

Þessi samsetning er ekki til.

Out of Stock
Invalid email
We'll notify you once the product is back in stock.
Added to your wishlist

1. Bleytið hanskann með köldu eða volgu vatni.
2. Byrjið á augnsvæðinu, fjarlægið farða með því að nota mjúkar hringlaga hreyfingar.
3. Handþvoið GLOV hanskann ykkar og notið við það handápu og vatn þar til öll óhreinindi eru horfin.
4. Hengið upp til þerris. Þegar GLOV hanskinn er þurr er hann tilbúinn til notkunar á ný.