Glov Nano Glass háreyðir
Nýstárlegt háreyðingartæki sem gerir húðina mjúka.
- Fyrir venjulega húð
- Öruggt og sársaukalaust
- Endurnýtanlegt
Glov Nano Glass háreyðingartól er nýstárleg lausn sem skilar húðinni hárlausri og mjúkri. Hægt að nota á handleggi, fótleggi og undir höndum og býður upp á sársaukalausan og öruggan valkost. Sérstakleg falleg hönnun sem fer vel í hendi og stærð sem tekur ekki mikið pláss í ferðalaginu.
Notkun:
Hreinsið húðina: Tryggið að húðin sé hrein og þurr fyrir notkun. Það hjálpar til við að koma í veg fyrir ertingu gerir að verkum að tólið virkar á áhrifaríkan hátt.
Undirbúðu húðina: Ef tólið er notað á viðkvæma húð, prufaðu þá fyrst á lítið svæði til að fullvissa þig um að engar aukaverkanir fylgi.
Notið mjúkar hringlaga hreyfingar: Haldið hárhreinsitólinu upp við húðina og hreyfið í mjúkum hringlaga hreyfingum. Hreyfingin hjálpar til við að fjarlægja hár og dauðar húðfrumur af yfirborðinu. Forðist að pressa harkalega að húðinni til að koma í veg fyrir ertingu.
Exfolierar: Með notkun á háreyðingartólinu þá fjarlægið þið ekki einungis hár heldur hjálpar það við að exfoliera efsta lag húðarinnar og hún verður slétt og mjúk.
Hreinsið og þurrkið: Eftir notkun hreinsið þá svæðið með volgu vatni til að fjarlægja óhreinindi og dauðar húðfrumur. Þurrkið húðina með mjúku handklæði með því að klappa létt á húðina.
Gefið húðinni raka: Berið varlega á ilmefnalaust rakakrem til að mýkja húðina og bæta rakann.
Hreinsið háreyðingartólið: Skolið tólið með heitu vatni og mildri sápu. Látið þorna vel.
Ráðleggingar fagmanns:
- Árangurinn getur verið misjafn eftir þykkt hárs og tegund húðar.
- Regluleg notkun getur hjálpað til við að minnka hárvöxt, þar sem aðferðin getur veikt hársekki.
- Ef þú upplifir einhver ertingu eða óþægindi skaltu hætta notkun og hafa samband við húðlæknir ef nauðsyn þykir.