Dr. Barbara Sturm Anti-Pollution dropar
Verndaðu húðina gegn skaðlegum umhverfisáhrifum sem flýta fyrir öldrun – þar á meðal útfjólubláum geislum (UV), sindurefnum og HEV-geislun (bláu ljósi) – á sama tíma og hún fær mikinn raka með Anti-Pollution Drops frá Dr. Barbara Sturm.
Þetta öfluga serum er ríkt af andoxunarefnum. Kjarninn í formúlunni er Skin Protect Complex, verndandi blanda sem byggir á sérstöku útdrætti úr örverum sem finnast í Frönsku Pólýnesíu.
Formúlan inniheldur einnig virkt efni unnið úr kakófræjum sem hjálpar húðinni að verjast öldrunareinkennum sem geta tengst bláu ljósi frá tölvum, snjallsímum og öðrum stafrænum tækjum.
Í heildina styrkir þetta snjalla serum náttúrulegar varnir húðarinnar og hjálpar til við að draga úr skaða sem getur orðið vegna mengunar í borgarumhverfi. Hægt er að nota það eitt og sér eða blanda nokkrum dropum út í uppáhalds kremið eða serumið.
Magn: 30ml
Vörumerki: Dr. Barbara Sturm
Notist síðast í húðrútínunni á morgnanna.
Notið heila pipettu af dropunum og dúppið þeim létt á húðina . Einnig er hægt að setja nokkra dropa út í dagkremið.