Dr. Barbara Sturm Lifting serum
Lifting Serum frá Dr. Barbara Sturm er í raun eins og andlitslyfting í flösku. Eins og nafnið gefur til kynna veitir það húðinni samstundis meiri þéttleika og stinnleika, þannig að hún verður sléttari, stífari og fínum línum verður minna áberandi.
Formúlan er rík af líffjölliðum (biopolymers) sem mynda létt og langvarandi net yfir húðina. Það hjálpar til við að slétta húðina, draga úr slappleika og veitir tafarlaus áhrif á hrukkur með því að minnka dýpt þeirra. Serumið hjálpar einnig til við að skerpa útlínur kjálkalínu sem hefur misst stinnleika og dregur úr pokum og þrota, svo húðin lítur ferskari út langt fram eftir degi eða kvöldi.
Líkt og „push-up“ brjóstahaldari fyrir húð sem hefur misst teygjanleika sinn inniheldur serumið einnig þörungaþykkni sem styður við myndun kollagens og elastíns – þeirra stoðpróteina sem halda húðinni stinnri, sterkari og mýkri.
Þetta er fullkomið serum þegar þú vilt líta sérstaklega vel út með stuttum fyrirvara. Það sléttir húðina, fyllir hana og gefur henni fallega áferð fyrir sérstök tilefni. Leyfðu þessu kraftmikla serumi að verða leynivopnið þitt áður en þú mætir á næsta viðburð.
Magn: 30ml
Vörumerki: Dr.Barbara Sturm
Þessi vara á að nota sem síðasta varan fyrir förðun.
Notið eina pípettu af serumi og berið á húðina og dúppið vörunni inn.
Leyfið 5 mínútum að líða áður en þið berið á ykkur farða.
Athugið að mögulega finnið þið smá strekkingu í húðinni.
Notist á morgnanna eða við einhver sérstök tækifæri.