Dermapen örnálameðferð
Skip to Content

Dermapen

Háþróuð húðendurnýjun fyrir fallegri og áferðarbetri húð

Dermapen er háþróuð örnálameðferð sem örvar náttúrulega endurnýjun húðarinnar og vinnur markvisst að sléttari, jafnari og ljómandi húð.

Með örfínum nálum er húðin örvuð á stýrðan og nákvæman hátt, sem styður við náttúruleg ferli húðarinnar og örvun kollagens og elastíns. Útkoman er húð sem getur orðið mýkri, sléttari og ferskari í útliti, með fallegri áferð og meiri ljóma.

Meðferðin hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja vinna með fínar línur, ójafna húðáferð, stórar og opnar svitaholur, ör eftir bólur og húð sem skortir ljóma og þéttleika. Virkar einnig til að draga úr rósroða og Keratosis Pilaris (kjúklingahúð).

Sérsniðin meðferð – fyrir þína húð


Dermapen er nákvæm og háþróuð örnálatækni sem vinnur með náttúrulega endurnýjun húðarinnar.

Penninn er búinn mörgum örfínum nálum sem hreyfast hratt lóðrétt upp og niður og mynda örsmá göt í húðina. Þessi nákvæma örvun setur af stað náttúrulegt viðgerðarferli húðarinnar og hvetur hana til að auka framleiðslu á kollageni og elastíni – próteinum sem skipta miklu máli fyrir þéttleika, styrk og mýkt húðarinnar.

Þegar húðin fer í þetta endurnýjunarferli getur hún smám saman orðið jafnari, sléttari og þéttari, áferðin getur batnað og húðin öðlast meiri ljóma. 

Meðferðin er því ekki einfaldlega yfirborðsmeðferð heldur örvun sem vinnur með eigin endurnýjunarkerfi húðarinnar.


Af hverju Dermapen?


Dermapen er alþjóðlegt vörumerki sem hefur sérhæft sig í háþróaðri örnálatækni fyrir faglegar húðmeðferðir. Tæknin er hönnuð með nákvæmni og stjórnun í fyrirrúmi, sem gerir kleift að aðlaga meðferðina að mismunandi húðgerðum og húðvandamálum. 

Hjá Eliru veljum við Dermapen vegna þess að við viljum vinna með vandaða, faglega tækni sem styður við náttúruleg endurnýjunarferli húðarinnar – og gefur okkur möguleika á að sérsníða hverja meðferð að hverju sinni.