MZ Skin meðferðir
Upplifðu lúxus og vellíðan með MZ Skin andlitsmeðferðum hjá Eliru. Meðferðirnar sameina áhrifarík húðvöruefni frá MZ Skin við nærandi og slakandi andlitsmeðferð sem skilur húðina eftir ferska, ljómandi og vel nærða.
MZ Skin er lúxus húðvörumerki stofnað af Dr. Maryam Zamani, augnlækni og fagmanni á sviði fagurfræðilegra meðferða. Vörurnar eru þróaðar með það að markmiði að styðja við heilbrigða, fallega og geislandi húð.
Í meðferðinni er lögð áhersla á djúpa næringu, raka og endurnýjun húðarinnar ásamt notalegri upplifun. Meðferðin er sérsniðin að þörfum húðarinnar og hentar vel þegar húðin þarfnast aukins raka, ljóma eða einfaldlega smá dekur.
MZ Skin andlitsbað – lúxus fyrir húðina og stund fyrir þig.
Komdu og upplifðu MZ Skin hjá Eliru – þar sem húðinni er sinnt af alúð og þú færð tækifæri til að slaka á og njóta.
Við bjóðum upp á mismunandi útgáfur af andlitsmeðferðinni:
- MZ Reveal & Glow andlitsmeðferð 45 mín (25.990 kr)
- MZ Reveal & Glow andlitsmeðferð 60 mín (34.990 kr)
- MZ Reveal & Glow andlitsmeðferð 75 mín (39.990 kr)
- MZ Reveal & Glow meðferðarpakki - þrjár meðferðir (79.990 kr)
Allar meðferðirnar innihalda LED meðferð
Bókið ykkar meðferð inn á noona.is/elira